Tamning og þjálfun



Traust milli manns og hests.
Það sem okkur finnst mikilvægast við tamningu og þjálfun hesta er að
byggja þjálfunina upp á forsendum hestsins. Forsendur hestsins geta
verið eins misjafnar og hestarnir eru margir, en mikilvægt er að lesa
hvern og einn hest fyrir sig. Dæmi um forsendur hestsins er, andlegt og
líkamlegt atgervi, geðslag hestsins og sá undirbúningur sem hesturinn
hefur fengið, ef einhver er. Hesturinn verður alltaf að hafa val. Við
leitumst við að haga undirbúningi og aðstæðum þannig að hesturinn velji
að vera hjá okkur og vinna með okkur.
Heiðrún Ósk og Pétur Örn eru útskrifaðir tamningamenn og reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum, þau eru bæði félagar í Félagi Tamningamanna FT
og hafa talsverða reynslu af keppnum og kynbótasýningum. Heiðrún og
Pétur taka að sér hross í tamningu og þjálfun, auk þess að vera með
hross til sölu. Þau bjóða einnig upp á reiðkennslu fyrir fólk á öllum
stigum. Þú getur lesið meira um þau hér.
Í Saurbæ eru frábærar og fjölbreyttar
útreiðaleiðir, grónir grasbakkar sem og góðir vegir. Vindheimamelar eru
hér rétt handan við ána, með frábærum reiðleiðum. Í Saurbæ er einnig góð
inniaðstaða til tamninga.