Fréttir
Lokakvöld Skagfirsku mótaraðarinnar fór fram miðvikudaginn 12 apríl. Pétur og Maiju tóku þátt í fimmgangi og komust bæði í úrslit. Þau riðu á bræðrunum Hlekki og Nirði frá Saurbæ en þeir eru báðir að stíga sín fyrstu skref í fimmgangi og því skemmtilegur árangur að komast með þá báða í úrslit. Pétur og Hlekkur sigruðu úrslitin með yfirburðum og Maiju og Njörður enduðu í fjórða sæti.
Pétur fékk verðlaun fyrir að vera stigahæsti knapinn samanlagt úr allri mótaröðinni í 1. flokki, en hann hefur náð að vera í úrslitum í öllum greinum og endaði svo á að vinna fimmganginn. Maiju hefur einnig komist í úrslit í öllu sem hún hefur tekið þátt í og var eflaust bara rétt fyrir neðan Pétur í samanlögðum stigum. Góður endir á þessari vetrarmótaröð sem er auðvitað fyrst og fremst góður undirbúningur fyrir komandi tímabil :-)
Hér koma nokkrar myndir frá vetrinum.








